föstudagur, janúar 28, 2005

Skúbb

Hér með tilkynnist um starfslok ritstjóra Röflsins hjá Góðu fólki McCann, Laugavegi 182. Þetta hefur verið skemmtilegur tími í næstum sex ár en nú, eða var það fyrir löngu síðan, er kominn tími til að prófa eitthvað nýtt.

Ég mun því helga krafta mína Röflinu, auk þess sem ég hef tekið að mér starf ritstjóra hjá Inntaki, almanntengslum svona on the side og hef störf þar um miðjan febrúar.

Auðvitað er erfitt að hætta en að sama skapi auðvelt. Það verður gaman að sjá....Nánar síðar.

ps.
einhverjir lesendur eru að kvarta yfir kommentakerfinu, það er svolítið flókið og því eru fá komment gerð (nema það séu svona fáir að lesa). Trixið er held ég að velja "anonymous" og skrifa nafnið sitt bara undir hvern póst f. sig. Það væri vissulega gaman að fá fleiri komment.

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel í næstu verkefnum. Slæmt fyrir þig að missa Gott-Fólk-VIP-Frímannsmiðann á völlinn. Hlakka til að sjá þig í almenningssætunum með okkur working class fólkinu. Það er því miður ekki þríréttað í hálfleik en þeim mun meira fjör

Kv.

Maggi

2:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home