miðvikudagur, janúar 07, 2009

Þannig

Er ég einn um að hafa áhyggjur af ofnotkun orðsins þannig?

Sjá hér í nýrri frétt:

Á einu ári hefur Evran þannig farið úr 90 krónum í 167 og japanskt jen úr 50 aurum í 1,3 krónur samkvæmt gengisskráningu Seðlabankans.

Myntkörfulán hafa þannig tvöfaldast á aðeins skömmum tíma.

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

eða ÞANNIG sko

1:42 e.h.  
Blogger Bergsteinn Sigurðsson said...

Ofnotkun orðsins "gríðarlega" fer meira í taugarnar á mér.

4:12 e.h.  
Blogger Unknown said...

Orðið klárlega er líka gríðarlega mikið notað hjá fólki í viðtölum. Mér finnst eins og það hafi bara byrjað að birtast einhverntímann í fyrra og þannig nýtilkomið í málinu.

1:02 f.h.  
Blogger Unknown said...

Heyrðu, setningin „ birtingarmynd sjálfbærra geðþóttaákvarðanna" fer þannig klárlega gríðarlega í taugarnar á mér.

5:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home